Studentexchange in numerous countries.
:: Home :: About iE :: News :: Programs :: Downloads :: FAQ :: Contact
Suður Afríka
Apply Online!
  >> Bandaríkin
>> Kanada
>> Ástralía
>> Nýja Sjáland
>> England

>> Írland

Velkominn til Suður Afríku. Hérna hittast tvö stór höf og heitt veður er mestallt árið. Fílar, sebrahestar og strútar er auðveldlega hægt að sjá í náttúrunni.

Suður Afríka er aðalhluti Afríku, með bestu tæknina, með breiðasta grundvöll í álfunni, með undirbyggingu skipulags sambærilegt við allar leiðtoga þjóðir heimsins.

Hver býr í Suður Afríku?
44 milljónir manna búa þar. Næstum 77% eru svartir, 11% eru hvítir og 9% eru “litaðir”, nafn sem fólk í Suður Afríku gefur fólki sem er blanda af Afríkumönnum, Asíubúum og hvítu fólki. Aðeins meira en helmingur þjóðarinnar býr í borgunum. Þrír fjórðu eru kristnir.

Hvaða tungumál er talað?
Enska er aðaltungumál Suður Afríku. Það er tungumál viðskipta, banka, umferðar- og stjórnmála. Annað stórt tungumál er afríkanska, afleidd af þýsku. Margir skólar í Cape Privinces kenna bæði afríkönsku og ensku. Um 40% þjóðarinnar tala Zulu eða Xhosa, en aðallega í sveitum Suður Afríku.

iE býður upp á fjórar skólategundir
iE skólar eru aðallega staðsettir í suðurhluta Suður Afríku (kallaður Cape Privinces) meðal suðurströndinni og nálægt Cape Town. Nemendur hafa valmöguleika á að fara í fjórar tegundir skóla: almennings-, smáeinka-, einka-, eða einka heimavistarskóla. Einkaskólar eru aðallega fjármagnaðir af skólagjöldum og framlögum. Heimavistaskólar bjóða uppá frábæra námsmöguleika eftir skóla starfssemi. Venjulega eru nemendur í skólabúningum, bæði í almennings- og einkaskólum.


Skiptinemafjölskyldur
iE nemendur eru settir í vandlega valdar fjölskyldur. Ef ekki er talað um annað er nemandi settur til enskumælandi fjölskyldu sem vill mjög mikið fá útlenskan nemanda til að vera partur af fjölskyldu sinni. Þar sem Suður Afríka er með marga kynþætti, geta nemendur líka verið settir hjá blönduðum fjölskyldum, sem eru hvít, lituð eða svört og einnig af mismunandi trúarbakgrunni.