Studentexchange in numerous countries.
:: Home :: About iE :: News :: Programs :: Downloads :: FAQ :: Contact
About international Experience
Apply Online!
   
Lítið og persónulegt
Við höfum mjög persónulega aðferð í að velja og staðsetja hvern nemanda í prógramminu okkar. Við tökum líka mikinn tíma í að finna bestu fjölskylduna fyrir nemendur okkar. Út af því, tökum við aðeins við takmörkuðum fjölda af nemendum inní iE prógrammið. Við erum að leita að góðum og vinalegum nemendum, sem eru aðlögunarhæfir, áhugasamir, sem eru inni í félagslífi skólans og vilja verða virkir meðlimir fjölskyldunar. Persónulegt eðli, þá sérstaklega jákvætt hugarfar, er mikilvægt í vali á hæfum þátttakendum fyrir iE prógrammið.

Nemanda kynning
Takmark okkar er að hver og einn einasta iE nemandi eigi ánægjulega og vel heppnaða reynslu utanlands. Til viðbótar við lesefnið, munu allir iE nemendur fara á kynningarfund. Þessi kynning verður haldinn yfir helgi seint um vorið og er skipulögð af reynslumiklu iE starfsfólki og fyrrverandi iE skiptinemum. Þessi kynning mun hjálpa við að undirbúa ykkur undir ánægjulega ferð utanlands.

Staðarhjálparmenn
Staðarhjálparmenn eru í hverju samfélagi sem við staðsetjum nemendur okkar. Þeir hjálpa við að finna fjölskyldu, hjálpa við öll vandamál sem koma upp og hafa ánægju af að vera hluti af ánægjulegu ári fyrir bæði skiptinemafjölskylduna og nemendurnar. Hjálparmenn sem eru að vinna óséðir í bakgrunninum eru mest tilheyrandi aðstaðan. Hjálp þeirra er vonandi sjaldan þörf á, en ef það er vandamál, þá eru þeir fljótir að hjálpa nemendunum og skiptinemafjölskyldunni þegar þörf er á. Staðarhjálparmennirnir hafa samband við nemendur okkar mánaðarlega. Margir hjálparmenn okkar sjá nemendurnar í hverri viku.

Trygging
Sjúkratrygging fyrir alla dvöl ykkar er skyldubundinn. Sjúkra- og slysatrygging frá iE hefur verið hönnuð sérstaklega fyrir skiptinemendur. iE sjúkra og ferðalagatrygging bíður uppá mjög háa tryggingu sem gæti verið betri en ykkar trygging.

Vasapeningar
Ef þú ferð í skóla sem lánar ekki bækur til nemenda, gæturðu þurft að eyða til viðbótar við skrifföng, milli $100 og $150 fyrir skólabækur. Til viðbótar, muntu þurfa að borga fyrir síma, póstkort, snyrtivörur, bíó- og tónleikamiða, gjafir, föt o.s.frv. Út af því mælum við með, fer eftir landi, milli $150 og $250 vasapeninga fyrir hvern mánuð.

Ökuskírteini
Skiptinemasamtökin hafa engin áhrif á að ná í ökuskírteini. Lögin í hverju landi munu ákveða hvort þú getur fengið ökuskírteini eða ekki. Eins og grunnskóla prófskírteini, er það mjög erfitt hvert ár fyrir skiptinemendur að fá ökuskírteini. Og skiptinema fjölskyldan þarf einnig að veita samþykki sitt, ekki aðeins við að keyra ökutæki þeirra heldur líka við að nota bíltryggingu þeirra (sem er oftast mjög dýr).

Framhaldsskóla prófskírteini
Megnið af iE nemendum fara í 11 bekk ( þú útskrifast eftir 12 bekk) sem gefur þeim ekki réttindi til að fá prófskírteini. Margir skólar nú til dags hafa mjög ströng skilyrði til að fá prófskírteini. Samt, fá margir af nemendum okkar “Þáttöku vottorð”.