Studentexchange in numerous countries.
:: Home :: About iE :: News :: Programs :: Downloads :: FAQ :: Contact
Welcome to international Experience
Apply Online!
   
Þið sem eruð að lesa þennan bækling hafið örugglega draum um að eyða skólaári utanlands, búa hjá skiptinemafjölskyldu, fara í almennings-, einka-, eða heimavistarskóla.
Við hjá iE myndum vilja spila stórt hlutverk við að hjálpa þér að uppfylla draum þinn. En af hverju ættir þú að velja iE til að skipuleggja ár þitt utanlands? Þetta er spurning sem við fáum á hverjum degi.

Við erum lítið fyrirtæki, og við trúum að við getum mest hjálpað þér með því að vera áfram lítið í sniðum. Við höfum mjög persónulega aðferð við að velja og koma hverjum nemanda fyrir innan okkar prógrams. Við vinnum að fullkomuleika. Til þess að geta boðið upp á prógram sem er einstaklingslega hæft fyrir hvern nemanda, viljum við hafa takmarkaðann fjölda nemanda. Við erum lítið fyrirtæki, og við ætlum okkur að vera þannig áfram.

Aðaltakmarkið okkar er að finna þá allrabestu skiptinemafjölskyldu fyrir hvern einasta nemanda okkar. En til þess að finna góða fjölskyldu, þurfum við að finna góða nemendur líka. Skilgreining okkar á “góðum” nemanda er ekki aðallega námslega séð. Við erum að leita að “frábærum” krökkum, stelpum og strákum sem geta aðlagað sig að nýju skiptinemafjölskyldu sinni og skólaumhverfinu og sem verða ábyrg og virkir meðlimir hjá fjölskyldum sínum.

Eru einkunnir mikilvægar? Auðvitað eru þær! En mikilvægara er hvernig manneskja þú ert. Við erum að leita að nemendum sem eru vinalegir, opnir fyrir öllu, virkir, og forvitnir um lífið, nemendur sem hafa jákvætt hugarfar og eru bjartsýnir á þær ögranir og ævintýri sem eru framundan.

Ég var Fulbright skiptinema kennari og hef persónulega tekið þátt í skiptinemum í yfir 30 ár. Og iE liðið er safn af einstaklingum sem skilja menningarmuninn (fjölskyldur, skólakerfi, hagir, félagsleg málefni o.s.frv.) milli Evrópu og restinni af heiminum. iE er byggt á árareynslu við að hjálpa skiptinemum uppfylla draum sinn um að búa utanlands og eiga ánægjulega og vel heppnaða reynslu.

Verið svo væn að lesa næstu blaðsíður þessa bæklings. Ef þið eruð áhugasöm um að iE skipuleggi skólaár ykkar utanlands, þá gerið svo vel að fylla út og senda okkur útfyllingarformið sem fylgir með. Eins fljótt og við höfum fengið þetta form, mun iE fulltrúi hafa samband við þig litlu seinna og útskýra skrefin sem þú þarft að fara í gegnum til að sækja um í prógramminu okkar.
iE liðið hlakkar til að hitta þig persónulega.

Með bestu persónu þökkum,
Paul Hallgrímson
European Director